Einkenni.

Hver eru helstu einkenni æðahnúta?

Einkenni æðahnútaÞreyta, pirringur, verkur, bjúgur og sinadráttur eru algeng einkenni æðahnúta.

Æðahnútar geta verið án einkenna, það er að einungis er um lýti að ræða. Flestir hafa þó einhver einkenni æðahnúta sem stundum geta verið óljós.

Einkenni æðahnúta verða oft meira áberandi þegar líður á daginn og sérstaklega eftir lengri stöður. Margir finna fyrir krömpum að næturlagi og gjarnan verður þeirra vart fyrri part nætur. Margir eiga erfitt með að lýsa verkjunum en þeir eru oft staðsettir þar sem æðahnútar eru. Mörgum finnst léttir að hafa hátt undir fætur til að losna við óþægindin. Fótaóeirð er venjulega ekki eitt af einkennum æðahnúta, þessi hvimleiðu einkenni geta einnig verið hjá einstaklingum með eðlilegt æðakerfi.

Ef æðahnútar hafa staðið lengi ómeðhöndlaðir geta komið fram varanlegar skemmdir í húðinni og einnig geta myndast sár. Þessi sár eru oft á tíðum mjög langvinn og erfið í meðferð og eru gjörn að koma aftur. Talið er að um 1% þjóðarinnar sé með eða hafi haft bláæðasár svo þetta er algengur kvilli.

Æðahnútar

Æðahnútar geta verið án einkenna, það er að einungis er um lýti að ræða. Flestir hafa þó einhver einkenni sem stundum geta verið óljós. Þreyta, pirringur, verkur, bjúgur og sinadráttur eru einkenni sem eru algeng. Ef æðahnútar hafa staðið lengi ómeðhöndlaðir geta komið fram varanlegar skemmdir í húðinni og einnig geta myndast sár. Þessi sár eru oft á tíðum mjög langvinn og erfið í meðferð og eru gjörn að koma aftur.

UM RVC

Reykvíska Bláæðasetrið, Reykjavík Venous Center (RVC) sérhæfir sig í meðferð bláæðavandamála. Guðmundur Daníelsson læknir hefur áður starfað hjá Scandinavian Venous Centre sem er leiðandi fyrirtæki í meðferð bláæðasjúkdóma í Svíþjóð og Noregi. Starfar hjá Aleris í Stavanger en Aleris er stærsta einkasjúkrahúsið á Norðurlöndum. Mikilvægt við framkvæmd innæðaaðgerða er góð kunnátta og reynsla í framkvæmd ómskoðana þar sem aðgerðin byggir á því.

Aðgerðin

RVC notast við laser af nýjustu gerð (ELVeS Radial 2ring™) sem er alþjóðlega viðurkenndur sem einn af þeim bestu og komin er mikil reynsla af notkun hans. Aðgerðin er gerð í staðdeyfingu og ekki er þörf á svæfingu þegar aðgerð er framkvæmd á þennan hátt. Aðgerðin er framkvæmd í ómskoðun (Mindray DP-50).

Upplýsingar

Læknahúsið DeaMedica
Álfheimum 74
107 Reykjavík
S:515-1600

Back to Top